Nú eru síðustu forvörð að tína og þurrka kryddjurtir og
aðrar jurtir til vetrarins. Nú er sá tími þar sem flestar kryddjurtirnar í garðinum
eru vel sprottnar, orðnar stórar og gróskumiklar. Þess vegna er um að gera að
nota tækifærðið og tína þær til þurrkunar og hafa þannig nóg af þeim í vetur. Drífa
í þessu áður en kuldinn, frostið og snjórinn kemur og þær sölna. Kryddplönturar
er hægt að nota í ýmislegt svo sem te, krydd og skraut. Skessujurt til að nota
í kjötsúpuna, mynta og fennel í teið, salvía í ýmis konar matreiðlsu og timíanið
líka er tilvalið að þurrka. Dillfræin eru notuð í kryddlegi og það sama gildir um koríanderfræin. Þar
fyrir utan eru margar villtar íslenskar jurtir hentugar að tína núna í te og fleira.
T.d mjarðjurt, maríustakk og vallhumall sem eru frábærar tejurtir og ekki má
gleyma fjallagrösunum!
|
Vallhumall |
|
Fenel |
|
Fenel |
|
Kamilla |
Þurrkun og tínsla
jurta
Hvernig eru jurtir þurrkaðar? Byrjaðu á að klippa eða handtínda jurtirnar. Það fer svolítið
eftir því hvaða plöntu þú ert að eiga við hvor aðferðin er betri. Þær með
mjúkari stöngull er hægt að handtína en plöntur með trékendari stöngull eru
klipptar. Best er að gera þetta í þurrviðri vegna þess að þá er auðveldast og
mestar líkurnar að vel takist til með þurrkunina. Plönturnar ætti annað hvort
að tína ofan í taupoka eða í vendi. Ef tíndar eru villtar jurtir þarf að þekkja
þær og aldrei að tína allt upp til agna af svæðinu því gaman gæti verið að koma
til baka að ári og endutaka skemmtunina. Athugið að tína aldrei þar sem eru
mengunarvaldar eru nálægir t.d. umferð og iðnaður. Fjallagrösin er þó betra og þægilegra að týna þegar þau eru blaut því þá losna þau svo skemmtilega frá mosanum.
Þegar heim er komið er best að setja pokana á þurran og hlýjan stað þar sem
getur loftað um þá og þess vegna meiga þeir heldur ekki vera pakkfullir. Það er
líka hægt að breiða úr plöntunum á hreint handklæði eða viskustykki í um það
bil 2-3 vikur. Þá er þú örugg(ur) um að þær séu þornaðar. Þegar afurðirnar eru
orðnar skrjáf þurrar þannig að þær molna í hendinni á þér er hægt að setja þær
á glerkrukkur eða tepoka til geymslu fyrir veturinn. Jurtir þurrkaðar í vöndum
eða búntum taka aðeins lengri tíma að þorna, sérstaklega ef þær hafa þykk
laufblöð.
Í teblöndurnar er líka gott að setja kryddjurtir eins og
kanell, kamillu og engifer.
Tilvalin teblanda
50 g maríustakkur
50 g mjaðurjurt
50 g mynta
100 g fenell
Öllu blandað vel
saman mulið i morteli og sett í glerkrukkur og geymt á dimmum stað eða strax
búin til rjúkandi og ilmandi te bolli.
|
Þurkkaður maríustakkur |