Agúrka,AAAA aaaa gúrka
Krumpuð gúrka, skökk gúrka, gúrka með göddum, bogin gúrka, stór gúrka, lítll gúrka.
Margar gúrkur í gróðurhúsi.
Það hefur tekist vel til í ár með gúrkurræktunnina. Þær spretta fram allstaðar. Mann ekki hvernig gúrku ég sáði til í vor en hún er pínu öðruvísi
15. september 2014
2. september 2014
Hvítlaukur heilsubætandi fæði er óstjórnlegt æði
Hvítlaukur er frábær á svo margan hátt. Ómissandi í matinn
og gefur matar- og bragð upplifanir sem eru engu líkar. Hann er hollur og getur
læknað ýmsa kvilla. Svo er til fólk sem engan veginn þolir hann og finnst
lyktin af honum viðbjóður. Sem sé planta sem getur vakið upp ýmis viðbrög og
hughrif. Þess vegna finnst mér tilvalið að skrifa um hann og líka vegna þess að
nú er tíminn til að koma honum ofan í moldina til að fá helling af
sjálfræktuðum hvítlauk næsta sumar.
Til eru margar gerðir af hvítlauk. Í grófum dráttum er hægt
að flokka þær í tvo flokka, hvítlauk með harðan stöngul og hvítlauk með mjúkan
stöngul. Harð stöngla hvítlaukur hefur stundum rauðar rendur utan á hýðinu og
er bragðbetri eða mildari og veldur
ekki hvítlauks andfýlu daginn eftir. Ástæðan er sú
að hann hefur ekki þau efnasambönd í sér sem geta myndað fýluna. En aftur á
móti geymist hann ekki eins vel og endist ekki í marga mánuði eftir að hann er
kominn upp úr jörðinni eins og hvítlaukur með mjúkan stöngul gerir. Þess vegna
er harð stöngla hvítlaukurinn miklu sjaldnar til sölu í matvörubúðum.
Að rækta hvítlauk er svo einfalt og auðvelt. Hann er
gróðursettur upp úr ágúst og fram í desember, áður en frystir. Stór heil rif
eru sett niður 5-10 cm ofan í jörðina með 10 cm millibili og með 15 cm bili á milli
raðanna. Það er hægt að breiða lauf, greinar og/eða dúk yfir laukabeðið til að
verja það gegn mesta frostinu. En það er ekki nauðsynlegt. Eftir að minnsta
kosti 3 vikur koma upp nokkur hvítlaukslaufblöð sem fara síðan í dvala yfir
kuldaskeiðið. Þau lifna svo aftur við með vorinu og þá heldur laukurinn bara
áfram að vaxa og blöðin verða stærri og fleiri. Það getur myndast blómhnúður og
stundum vex stöngullinn og blómið í lykkju sem er svolítið fyndið. Þegar líða
tekur á sumarið fara blöðin að þorna á endunum og lafa niður. Þá er kominn tíma
til að taka hvítlaukinn upp. Ef laufblöðin eru búin að vera gul og lafandi í
viku eða meira er orðið nokkuð ljóst að hvítlaukurinn vex ekki mikið meira. Það
er oftast í júlí /ágúst. Hvítlaukurinn er þá grafinn varlega upp. Þetta er eftirvæntingarfull
stund eins allar stundir þegar maður grefur upp grænmeti. Þegar búið er að taka
hvítlaukinn upp er mikilvægt að þurrka hann vel, og dusta af mestu moldina. Hann
þarf að vera alveg þornaður áður en hann fer inn í ísskáp því annars rotnar
hann. Það er líka hægt að geyma hann á þurrum, dimmum stað. Annar möguleiki er
að flétta saman stönglana og búa þannig til hvítlauksknippi.
Á vaxtartímanum er hægt að klippa aðeins af grænu laufblöðunum og nota í mat. Það er milt hvítlauksbragð af þeim. Ég hef stundum tekið forskort á sæluna og tekið upp einn og einn lítinn hvítlauk um vorið eða snemmsumars. Hvítlaukur vex á sólríkum stað og þarf áburð til að vaxa vel.
Á vaxtartímanum er hægt að klippa aðeins af grænu laufblöðunum og nota í mat. Það er milt hvítlauksbragð af þeim. Ég hef stundum tekið forskort á sæluna og tekið upp einn og einn lítinn hvítlauk um vorið eða snemmsumars. Hvítlaukur vex á sólríkum stað og þarf áburð til að vaxa vel.
Hvítlaukur er ótrúlega skemmtilegur hlutur að monta sig af
að vera sjálfbær með. Ég hef í mörg ár bara sett niður hvítlauksrif sem ég hef
keypt úti í búð. Sem alltaf hefur virkað. Ég hef þó heyrt að það geti gerst að
búðar hvítlaukur spíri ekki. Þess vegna bendi ég líka á að hægt er að kaupa
hvítlauk í gróðrastöðvunum.
Að lokum vil ég mæla með einni frábærri aðferð við að elda
og borða hvítlauk. Það er að grilla eða baka í ofni heila hvítlauka, og smyrja
svo innhaldinu ofan á brauð, kannski með smá olíu, smjöri eða kryddjurtum. Mhmm
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)